Tími til kominn að pússla saman
vel völdu liði sem ég vil kalla Drengir Júpiters..
#1 Markmaður: Það er sjálfvalið í þessa stöðu –
Eftir hreint stórkostleg tilþrif síðast í markinu þá tekur Andri
þessa stöðu og jarðar hana! Honum hefur verið líkt við Taibi eftir
síðustu æfingu..
#2 Hægri bakvörður:
Dvenni hefur
verið latur að mæta undanförnu en hann er með spyrnur fram
sem hafa ekki sést áður – Hann og Andri eiga í hörku baráttu
með markmannsstöðuna enda vilja þeir hvorugir spila sem
útileikmenn.. Steve Finnan á e-ð í honum Dvenna, það er alveg
ljóst..
#3 Vinstri bakvörður:
Fífí hefur ekki
enn spilað með liðinu eftir hann var keyptur frá stórliðinu
“Akureyri´s family Outback” en um er að ræða stórkostlega
svíaslátru og vinstri bakvörð sem miklar vonir eru bundnar
við..! Hann þykir liðtækur í handbolta og verður okkar Faxi,
Staffan Olsson..
#6 Miðvörður: Timbertank er stórhættulegur tuddari
sem hlífir engum lifandi verum.. Hann minnir á Cannavaro, lágvaxinn
fljölbragðaglímumaður sem öskrar á allt og alla og vill fá dæmt
leikaraskap á sóknarmanninn sem hann var jafnvel að enda við að
tvífótbrjóta! 
#5 Miðvörður: Áni er 106 kg sem gerir hann að
þyngsta og öflugasta manninum okkar – Auðvitað fer hann í
miðvörðinn og verður okkar klettur meðan Tankurinn verður
meira þessi tæknilega Puyol týpa..
#7 Hægri kantur: Narfinn er fljótur, sterkur,
kvennsamur og ólmur í að koma boltanum fyrir rammann! Hann
verður í Kieron Dyer stílnum, alltaf meiddur eftir að hafa
ráðist á nokkrar byggingar og smallað bæði rúðum sem og öðrum
eigin líkamspörtum..
#11 Vinstri kantur:
Einar frændi er
snarpur og vill alltaf vel, sérstaklega þegar kemur að því að
selja liðsmönnum Drengjanna e-rjar skodadruslur – Hann er
sérstaklega öflugur fram á við og með baneitruð skot – Patrik
Berger og Einar eiga samleið – Einar-arnir á köntunum verða
okkar helsta vopn í sókninni..
#4 DMC miðjumaður:
Mílzi, ég veit
ekki afhverju ég setti mig í þessa stöðu enda er hún
vandræðaleg og leiðinleg – Ég vil þó meina að ég sé okkar
fyrirliðaefni og öflugasti leikmaður klúbbsins þegar kemur að
því að vera með þrífótatæklingar á stelpnalið KR ef það
skyldi gerast e-rntíman að við spilum gegn þeim! Ég stefni að
hári eins og Robbie Savage er með því það er ekki
töff..
#8 AMC miðjumaður:
Dóri Hólm hefur
sýnt að hann kann helstu fræðin og hikar ekki við að skjóta
boltanum eftir að hafa tekið þreföld skæri og oftar en ekki
liggur knötturinn í netinu! Hann minnir á Deco, góður
sóknarlega en húfan gerir það að verkum að það er ekki séns
að Dóri sé að fara skalla boltann..
#10 Sóknarmaður: Elli verður í því að saurþjappa
markvarðargreyið hverju sinni og gerir okkur þar af leiðandi
mjög skeinuhætta í bókstaflegri merkingu! Hann skeinir
kvikindunum og læðir svo boltanum inn eins og ekkert
sé..
#9 Sóknarmaður: Ragú hefur hæðina, og styrkinn
til að vera betri en Jan Koller og vinnur alla skallabolta
(en samt ekki) og læðir inn mikilvægum mörkum.. Á það til að
bregða sér í vörnina þar sem hann þrífótatæklar allt sem
hreyfist! Hann og Elli vega upp hvorn annan, Elli fljótur og
Ragú stór og sterkur - Elli þjappar og Ragú delatrinkar..

Þjálfari og framkvæmdarstjóri:
Valbalinn sér um að
sérvelja í liðið eftir frammistöðu leikmanna og þar sem hann þykir
einkar laginn í fótbolta sjálfur er hann 12 maður í allar stöður og
líkar alls ekki vel! En hverjum er ekki sama um það?

Ekki var þó Egill Gunn
sérlegur aðstoðarþjálfari Valla, sammála valinu og hér kemur það
lið sem hann telur best henta:
-
http://i11.tinypic.com/4bgcpja.jpg
-
Ég set linkinn inn
á myndina því að myndin verður að vera svo stór til að skýr
sé..